1Er Jesús varð þess vís, að farísear hefðu heyrt, að hann fengi fleiri lærisveina og skírði fleiri en Jóhannes,
2_ reyndar skírði Jesús ekki sjálfur, heldur lærisveinar hans _
3þá hvarf hann brott úr Júdeu og hélt aftur til Galíleu.
4Hann varð að fara um Samaríu.
5Nú kemur hann til borgar í Samaríu, er Síkar heitir, nálægt þeirri landspildu, sem Jakob gaf Jósef syni sínum.
6Þar var Jakobsbrunnur. Jesús var vegmóður, og settist hann þarna við brunninn. Þetta var um hádegisbil.
7Samversk kona kemur að sækja vatn. Jesús segir við hana:
8En lærisveinar hans höfðu farið inn í borgina að kaupa vistir.
9Þá segir samverska konan við hann: ,,Hverju sætir, að þú, sem ert Gyðingur, biður mig um að drekka, samverska konu?``
10Jesús svaraði henni:
11Hún segir við hann: ,,Herra, þú hefur enga skjólu að ausa með, og brunnurinn er djúpur. Hvaðan hefur þú þetta lifandi vatn?
12Ertu meiri en Jakob forfaðir vor, sem gaf oss brunninn og drakk sjálfur úr honum og synir hans og fénaður?``
13Jesús svaraði:
14
15Þá segir konan við hann: ,,Herra, gef mér þetta vatn, svo að mig þyrsti ekki og ég þurfi ekki að fara hingað að ausa.``
16Hann segir við hana:
17Konan svaraði: ,Ég á engan mann.`` Jesús segir við hana:
18
19Konan segir við hann: ,,Herra, nú sé ég, að þú ert spámaður.
20Feður vorir hafa tilbeðið Guð á þessu fjalli, en þér segið, að í Jerúsalem sé sá staður, þar sem tilbiðja skuli.``
21Jesús segir við hana:
22
23
24
25Konan segir við hann: ,,Ég veit, að Messías kemur _ það er Kristur. Þegar hann kemur, mun hann kunngjöra oss allt.``
26Jesús segir við hana:
27Í sama bili komu lærisveinar hans og furðuðu sig á því, að hann var að tala við konu. Þó sagði enginn: ,,Hvað viltu?`` eða: ,,Hvað ertu að tala við hana?``
28Nú skildi konan eftir skjólu sína, fór inn í borgina og sagði við menn:
29,,Komið og sjáið mann, er sagði mér allt, sem ég hef gjört. Skyldi hann vera Kristur?``
30Þeir fóru úr borginni og komu til hans.
31Meðan þessu fór fram, báðu lærisveinarnir hann: ,,Rabbí, fá þér að eta.``
32Hann svaraði þeim:
33Þá sögðu lærisveinarnir sín á milli: ,,Skyldi nokkur hafa fært honum að eta?``
34Jesús sagði við þá:
35
36
37
38
39Margir Samverjar úr þessari borg trúðu á hann vegna orða konunnar, sem vitnaði um það, að hann hefði sagt henni allt, sem hún hafði gjört.
40Þegar því Samverjarnir komu til hans, báðu þeir hann að staldra við hjá sér. Var hann þar um kyrrt tvo daga.
41Og miklu fleiri tóku trú, þegar þeir heyrðu hann sjálfan.
42Þeir sögðu við konuna: ,,Það er ekki lengur sakir orða þinna, að vér trúum, því að vér höfum sjálfir heyrt hann og vitum, að hann er sannarlega frelsari heimsins.``
43Eftir þessa tvo daga fór hann þaðan til Galíleu.
44En sjálfur hafði Jesús sagt, að spámaður væri ekki metinn í föðurlandi sínu.
45Þegar hann kom nú til Galíleu, tóku Galíleumenn honum vel, þar eð þeir höfðu séð allt sem hann gjörði á hátíðinni í Jerúsalem, enda höfðu þeir sjálfir sótt hátíðina.
46Nú kom hann aftur til Kana í Galíleu, þar sem hann hafði gjört vatn að víni. Í Kapernaum var konungsmaður nokkur, sem átti sjúkan son.
47Þegar hann frétti, að Jesús væri kominn frá Júdeu til Galíleu, fór hann til hans og bað hann að koma niður eftir og lækna son sinn. En hann var dauðvona.
48Þá sagði Jesús við hann:
49Konungsmaður bað hann: ,,Herra, kom þú áður en barnið mitt andast.``
50Jesús svaraði:
51En meðan hann var á leiðinni ofan eftir, mættu honum þjónar hans og sögðu, að sonur hans væri á lífi.
52Hann spurði þá, hvenær honum hefði farið að létta, og þeir svöruðu: ,,Í gær upp úr hádegi fór hitinn úr honum.``
53Þá sá faðirinn, að það var á þeirri stundu, þegar Jesús hafði sagt við hann:
54Þetta var annað táknið, sem Jesús gjörði, þegar hann kom frá Júdeu til Galíleu.