1Nú fór í hönd hátíð ósýrðu brauðanna, sú er nefnist páskar.
2Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum, því að þeir voru hræddir við lýðinn.
3Þá fór Satan í Júdas, sem kallaður var Ískaríot og var í tölu þeirra tólf.
4Hann fór og ræddi við æðstu prestana og varðforingjana um það, hvernig hann skyldi framselja þeim Jesú.
5Þeir urðu glaðir við og hétu honum fé fyrir.
6Hann gekk að því og leitaði færis að framselja hann þeim, þegar fólkið væri fjarri.
7Þegar sá dagur ósýrðu brauðanna kom, er slátra skyldi páskalambinu,
8sendi Jesús þá Pétur og Jóhannes og sagði:
9Þeir sögðu við hann: ,,Hvar vilt þú, að við búum hana?``
10En hann sagði við þá:
11
12
13Þeir fóru og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.
14Og er stundin var komin, gekk hann til borðs og postularnir með honum.
15Og hann sagði við þá:
16
17Þá tók hann kaleik, gjörði þakkir og sagði:
18
19Og hann tók brauð, gjörði þakkir, braut það, gaf þeim og sagði:
20Eins tók hann kaleikinn eftir kvöldmáltíðina og sagði:
21
22
23Og þeir tóku að spyrjast á um það, hver þeirra mundi verða til þess að gjöra þetta.
24Og þeir fóru að metast um, hver þeirra væri talinn mestur.
25En Jesús sagði við þá:
26
27
28
29
30
31
32
33En Símon sagði við hann: ,,Herra, reiðubúinn er ég að fylgja þér bæði í fangelsi og dauða.``
34Jesús mælti:
35Og hann sagði við þá:
36Þá sagði hann við þá:
37
38En þeir sögðu: ,Herra, hér eru tvö sverð.`` Og hann sagði við þá:
39Síðan fór hann út og gekk, eins og hann var vanur, til Olíufjallsins. Og lærisveinarnir fylgdu honum.
40Þegar hann kom á staðinn, sagði hann við þá:
41Og hann vék frá þeim svo sem steinsnar, féll á kné, baðst fyrir og sagði:
42
43
44
45Hann stóð upp frá bæn sinni, kom til lærisveinanna og fann þá sofandi, örmagna af hryggð.
46Og hann sagði við þá:
47Meðan hann var enn að tala, kom flokkur manna, og fremstur fór einn hinna tólf, Júdas, áður nefndur. Hann gekk að Jesú til að kyssa hann.
48Jesús sagði við hann:
49Þeir sem með honum voru, sáu að hverju fór og sögðu: ,,Herra, eigum vér ekki að bregða sverði?``
50Og einn þeirra hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað.
51Þá sagði Jesús:
52Þá sagði Jesús við æðstu prestana, varðforingja helgidómsins og öldungana, sem komnir voru á móti honum:
53
54En þeir tóku hann höndum og leiddu brott og fóru með hann í hús æðsta prestsins. Pétur fylgdi eftir álengdar.
55Menn höfðu kveikt eld í miðjum garðinum og sátu við hann, og Pétur settist meðal þeirra.
56En þerna nokkur sá hann sitja í bjarmanum, hvessti á hann augun og sagði: ,,Þessi maður var líka með honum.``
57Því neitaði hann og sagði: ,,Kona, ég þekki hann ekki.``
58Litlu síðar sá hann annar maður og sagði: ,,Þú ert líka einn af þeim.`` En Pétur svaraði: ,,Nei, maður minn, það er ég ekki.``
59Og að liðinni um það bil einni stund fullyrti enn annar þetta og sagði: ,,Víst var þessi líka með honum, enda Galíleumaður.``
60Pétur mælti: ,,Ekki skil ég, hvað þú átt við, maður.`` Og jafnskjótt sem hann sagði þetta, gól hani.
61Og Drottinn vék sér við og leit til Péturs. Þá minntist Pétur orða Drottins, er hann mælti við hann:
62Og hann gekk út og grét beisklega.
63En þeir menn, sem gættu Jesú, hæddu hann og börðu,
64huldu andlit hans og sögðu: ,,Spáðu nú, hver það var, sem sló þig?``
65Og marga aðra svívirðu sögðu þeir við hann.
66Þegar dagur rann, kom öldungaráð lýðsins saman, bæði æðstu prestar og fræðimenn, og létu færa hann fyrir ráðsfund sinn.
67Þeir sögðu: ,Ef þú ert Kristur, þá seg oss það.`` En hann sagði við þá:
68
69
70Þá spurðu þeir allir: ,Ert þú þá sonur Guðs?`` Og hann sagði við þá: ,Þér segið, að ég sé sá.``En þeir sögðu:
71En þeir sögðu: ,,Hvað þurfum vér nú framar vitnis við? Vér höfum sjálfir heyrt það af munni hans.``