1Um þessar mundir bar enn svo við, að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar. Jesús kallar þá til sín lærisveinana og segir við þá:
2
3
4Þá svöruðu lærisveinarnir: ,,Hvar er hægt að fá brauð til að metta þetta fólk hér í óbyggðum?``
5Hann spurði þá:
6Þá bauð hann fólkinu að setjast á jörðina, tók brauðin sjö, gjörði þakkir og braut þau og gaf lærisveinum sínum, að þeir bæru þau fram. En þeir báru þau fram fyrir fólkið.
7Þeir höfðu og fáeina smáfiska. Hann þakkaði Guði og bauð, að einnig þeir skyldu fram bornir.
8Menn neyttu og urðu mettir. Síðan tóku þeir saman leifarnar, sjö körfur.
9En þeir voru um fjórar þúsundir. Síðan lét hann þá fara.
10Og hann sté þegar í bátinn með lærisveinum sínum og kom í Dalmanútabyggðir.
11Þangað komu farísear og tóku að þrátta við hann, þeir vildu freista hans og kröfðu hann um tákn af himni.
12Hann andvarpaði þungan innra með sér og mælti:
13Hann skildi síðan við þá, sté aftur í bátinn og fór yfir um.
14Þeir höfðu gleymt að taka brauð, höfðu ekki nema eitt brauð með sér í bátnum.
15Jesús áminnti þá og sagði:
16En þeir ræddu sín á milli, að þeir hefðu ekki brauð.
17Hann varð þess vís og segir við þá:
18
19
20
21Og hann sagði við þá:
22Þeir koma nú til Betsaídu. Þar færa menn til Jesú blindan mann og biðja, að hann snerti hann.
23Hann tók í hönd hins blinda, leiddi hann út úr þorpinu, skyrpti í augu hans, lagði hendur yfir hann og spurði:
24Hann leit upp og mælti: ,,Ég sé menn, ég greini þá líkt og tré, þeir ganga.``
25Þá lagði hann aftur hendur yfir augu hans, og nú sá hann skýrt, varð albata og heilskyggn á allt.
26Jesús sendi hann síðan heim til sín og sagði:
27Jesús fór nú ásamt lærisveinum sínum til þorpanna hjá Sesareu Filippí. Á leiðinni spurði hann lærisveina sína:
28Þeir svöruðu honum: ,,Jóhannes skírara, aðrir Elía og aðrir einn af spámönnunum.``
29Og hann spurði þá:
30Og hann lagði ríkt á við þá að segja engum frá sér.
31Þá tók hann að kenna þeim: ,,Mannssonurinn á margt að líða, honum mun útskúfað verða af öldungum, æðstu prestum og fræðimönnum, hann mun líflátinn, en upp rísa eftir þrjá daga.``
32Þetta sagði hann berum orðum. En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann.
33Jesús sneri sér við, leit til lærisveina sinna, ávítaði Pétur og sagði:
34Og hann kallaði til sín mannfjöldann ásamt lærisveinum sínum og sagði við þá:
35
36
37
38