1Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans og fer með þá upp á hátt fjall, að þeir væru einir saman.
2Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól, og klæði hans urðu björt eins og ljós.
3Og Móse og Elía birtust þeim, og voru þeir á tali við hann.
4Pétur tók til máls og sagði við Jesú: ,,Herra, gott er, að vér erum hér. Ef þú vilt, skal ég gjöra hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.``
5Meðan hann var enn að tala, skyggði yfir þá bjart ský, og rödd úr skýinu sagði: ,,Þessi er minn elskaði sonur, sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!``
6Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta, féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög.
7Jesús gekk til þeirra, snart þá og mælti:
8En er þeir hófu upp augu sín, sáu þeir engan nema Jesú einan.
9Á leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim og mælti:
10Lærisveinarnir spurðu hann: ,,Hví segja fræðimennirnir, að Elía eigi fyrst að koma?``
11Hann svaraði:
12
13Þá skildu lærisveinarnir, að hann hafði talað við þá um Jóhannes skírara.
14Þegar þeir komu til fólksins, gekk til hans maður, féll á kné fyrir honum
15og sagði: ,,Herra, miskunna þú syni mínum. Hann er tunglsjúkur og illa haldinn. Oft fellur hann á eld og oft í vatn.
16Ég fór með hann til lærisveina þinna, en þeir gátu ekki læknað hann.``
17Jesús svaraði:
18Og Jesús hastaði á hann og illi andinn fór úr honum. Og sveinninn varð heill frá þeirri stundu.
19Þá komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann einslega: ,,Hvers vegna gátum vér ekki rekið hann út?``
20Hann svaraði þeim:
21[
22Þegar þeir voru saman í Galíleu, sagði Jesús við þá:
23
24Þá er þeir komu til Kapernaum, gengu menn þeir, sem heimta inn musterisgjaldið, til Péturs og spurðu: ,,Geldur meistari yðar eigi musterisgjaldið?``
25Hann kvað svo vera. En er hann kom inn, tók Jesús fyrr til máls og mælti:
26,Af vandalausum,`` sagði Pétur. Jesús mælti:
27