1Þegar Jesús hafði lokið öllum þessum orðum, sagði hann við lærisveina sína:
2
3Æðstu prestarnir og öldungar lýðsins söfnuðust nú saman í höll æðsta prestsins, er Kaífas hét,
4og réðu með sér að handsama Jesú með svikum og taka hann af lífi.
5En þeir sögðu: ,,Ekki á hátíðinni, annars verður uppþot með lýðnum.``
6En Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa.
7Kom þá til hans kona og hafði alabastursbuðk með dýrum smyrslum og hellti yfir höfuð honum, þar sem hann sat að borði.
8Við þessa sjón urðu lærisveinarnir gramir og sögðu: ,,Til hvers er þessi sóun?
9Þetta hefði mátt selja dýru verði og gefa fátækum.``
10Jesús varð þess vís og sagði við þá:
11
12
13
14Þá fór einn þeirra tólf, Júdas Ískaríot að nafni, til æðstu prestanna
15og sagði: ,,Hvað viljið þér gefa mér fyrir að framselja yður Jesú?`` En þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga.
16Upp frá þessu leitaði hann færis að framselja hann.
17Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: ,,Hvar vilt þú, að vér búum þér páskamáltíðina?``
18Hann mælti:
19Lærisveinarnir gjörðu sem Jesús bauð þeim og bjuggu til páskamáltíðar.
20Um kvöldið sat hann til borðs með þeim tólf.
21Og er þeir mötuðust, sagði hann:
22Þeir urðu mjög hryggir og sögðu við hann, einn af öðrum: ,,Ekki er það ég, herra?``
23Hann svaraði þeim:
24
25En Júdas, sem sveik hann, sagði: ,Rabbí, ekki er það ég?`` Jesús svaraði:
26Þá er þeir mötuðust, tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf lærisveinunum og sagði:
27Og hann tók kaleik, gjörði þakkir, gaf þeim og sagði:
28
29
30Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins.
31Þá segir Jesús við þá:
32
33Þá segir Pétur: ,,Þótt allir hneykslist á þér, skal ég aldrei hneykslast.``
34Jesús sagði við hann:
35Pétur svarar: ,,Þótt ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér.`` Eins töluðu allir lærisveinarnir.
36Þá kemur Jesús með þeim til staðar, er heitir Getsemane, og hann segir við lærisveinana:
37Hann tók með sér þá Pétur og báða sonu Sebedeusar. Og nú setti að honum hryggð og angist.
38Hann segir við þá:
39Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll fram á ásjónu sína, baðst fyrir og sagði:
40Hann kemur aftur til lærisveinanna og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur:
41
42Aftur vék hann brott annað sinn og bað:
43Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra.
44Þá fór hann enn frá þeim og baðst fyrir þriðja sinn með sömu orðum og fyrr.
45Og hann kom til lærisveinanna og sagði við þá:
46
47Meðan hann var enn að tala, kom Júdas, einn þeirra tólf, og með honum mikill flokkur frá æðstu prestunum og öldungum lýðsins, og höfðu þeir sverð og barefli.
48Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: ,,Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum.``
49Hann gekk beint að Jesú og sagði: ,,Heill, rabbí!`` og kyssti hann.
50Jesús sagði við hann:
51Einn þeirra, sem með Jesú voru, greip til sverðs og brá því, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.
52Jesús sagði við hann:
53
54
55Á þeirri stundu sagði Jesús við flokkinn:
56En allt verður þetta til þess, að ritningar spámannanna rætist.`` Þá yfirgáfu hann lærisveinarnir allir og flýðu.
57Þeir sem tóku Jesú höndum, færðu hann til Kaífasar, æðsta prests, en þar voru saman komnir fræðimennirnir og öldungarnir.
58Pétur fylgdi honum álengdar, allt að garði æðsta prestsins. Þar gekk hann inn og settist hjá þjónunum til að sjá, hver yrði endir á.
59Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu ljúgvitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann,
60en fundu ekkert, þótt margir ljúgvottar kæmu. Loks komu tveir
61og sögðu: ,,Þessi maður sagði: ,Ég get brotið niður musteri Guðs og reist það aftur á þrem dögum.```
62Þá stóð æðsti presturinn upp og sagði: ,,Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?``
63En Jesús þagði. Þá sagði æðsti presturinn við hann: ,,Ég særi þig við lifandi Guð, segðu oss: Ertu Kristur, sonur Guðs?``
64Jesús svarar honum:
65Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: ,,Hann guðlastar, hvað þurfum vér nú framar votta við? Þér heyrðuð guðlastið.
66Hvað líst yður?`` Þeir svöruðu: ,,Hann er dauðasekur.``
67Og þeir hræktu í andlit honum og slógu hann með hnefunum, en aðrir börðu hann með stöfum
68og sögðu: ,,Spáðu nú, Kristur, hver var að slá þig?``
69En Pétur sat úti í garðinum. Þar kom að honum þerna ein og sagði: ,,Þú varst líka með Jesú frá Galíleu.``
70Því neitaði hann svo allir heyrðu og sagði: ,,Ekki veit ég, hvað þú ert að fara.``
71Hann gekk út í fordyrið. Þar sá hann önnur þerna og sagði við þá, sem þar voru: ,,Þessi var með Jesú frá Nasaret.``
72En hann neitaði sem áður og sór þess eið, að hann þekkti ekki þann mann.
73Litlu síðar komu þeir, er þar stóðu, og sögðu við Pétur: ,,Víst ertu líka einn af þeim, enda segir málfæri þitt til þín.``
74En hann sór og sárt við lagði, að hann þekkti ekki manninn. Um leið gól hani.Og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt: ,,Áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.`` Og hann gekk út og grét beisklega.
75Og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt: