1Þá sté Jesús í bát og hélt yfir um og kom til borgar sinnar.
2Þar færa menn honum lama mann, sem lá í rekkju. Þegar Jesús sá trú þeirra, sagði hann við lama manninn:
3Nokkrir fræðimenn sögðu þá með sjálfum sér: ,,Hann guðlastar!``
4En Jesús þekkti hugsanir þeirra og sagði:
5
6
7Og hann stóð upp og fór heim til sín.
8En fólkið, sem horfði á þetta, varð ótta slegið og lofaði Guð, sem gefið hafði mönnum slíkt vald.
9Þá er hann gekk þaðan, sá hann mann sitja hjá tollbúðinni, Matteus að nafni, og hann segir við hann:
10Nú bar svo við, er Jesús sat að borði í húsi hans, að margir tollheimtumenn og bersyndugir komu og settust þar með honum og lærisveinum hans.
11Þegar farísear sáu það, sögðu þeir við lærisveina hans: ,,Hvers vegna etur meistari yðar með tollheimtumönnum og bersyndugum?``
12Jesús heyrði þetta og sagði:
13
14Þá koma til hans lærisveinar Jóhannesar og segja: ,,Hví föstum vér og farísear, en þínir lærisveinar fasta ekki?``
15Jesús svaraði þeim:
16
17
18Meðan hann var að segja þetta við þá, kom forstöðumaður einn, laut honum og sagði: ,,Dóttir mín var að skilja við, kom og legg hönd þína yfir hana, þá mun hún lifna.``
19Jesús stóð upp og fór með honum og lærisveinar hans.
20Kona, sem hafði haft blóðlát í tólf ár, kom þá að baki honum og snart fald klæða hans.
21Hún hugsaði með sér: ,,Ef ég fæ aðeins snert klæði hans, mun ég heil verða.``
22Jesús sneri sér við, og er hann sá hana, sagði hann:
23Þegar Jesús kom að húsi forstöðumannsins og sá pípuleikara og fólkið í uppnámi,
24sagði hann:
25Þegar fólkið hafði verið látið fara, gekk hann inn og tók hönd hennar, og reis þá stúlkan upp.
26Og þessi tíðindi bárust um allt það hérað.
27Þá er Jesús hélt þaðan, fóru tveir blindir menn eftir honum og kölluðu: ,,Miskunna þú okkur, sonur Davíðs.``
28Þegar hann kom heim, gengu blindu mennirnir til hans. Jesús spyr þá:
29Þá snart hann augu þeirra og mælti:
30Og augu þeirra lukust upp. Jesús lagði ríkt á við þá og sagði:
31En þeir fóru og víðfrægðu hann í öllu því héraði.
32Þegar þeir voru að fara, var komið til hans með mállausan mann, haldinn illum anda.
33Og er illi andinn var út rekinn, tók málleysinginn að mæla. Mannfjöldinn undraðist og sagði: ,,Aldrei hefur þvílíkt sést í Ísrael.``
34En farísearnir sögðu: ,,Með fulltingi höfðingja illra anda rekur hann út illu andana.``
35Jesús fór nú um allar borgir og þorp og kenndi í samkundum þeirra. Hann flutti fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi.
36En er hann sá mannfjöldann, kenndi hann í brjósti um þá, því þeir voru hrjáðir og umkomulausir eins og sauðir, er engan hirði hafa.
37Þá sagði hann við lærisveina sína:
38