Sálmarnir 140:1-13 ICEB2015 - Bible AI

1Til söngstjórans. Davíðssálmur.

2Frelsa mig, Drottinn, frá illmennum, vernda mig fyrir ofríkismönnum,

3þeim er hyggja á illt í hjarta sínu og vekja ófrið á degi hverjum.

4Þeir gjöra tungur sínar hvassar sem höggormar, nöðrueitur er undir vörum þeirra. [Sela]

5Varðveit mig, Drottinn, fyrir hendi óguðlegra, vernda mig fyrir ofríkismönnum, er hyggja á að bregða fæti fyrir mig.

6Ofstopamenn hafa lagt gildrur í leyni fyrir mig og þanið út snörur eins og net, hjá vegarbrúninni hafa þeir lagt möskva fyrir mig. [Sela]

7Ég sagði við Drottin: Þú ert Guð minn, ljá eyra, Drottinn, grátbeiðni minni.

8Drottinn Guð, mín máttuga hjálp, þú hlífir höfði mínu á orustudeginum.

9Uppfyll eigi, Drottinn, óskir hins óguðlega, lát vélar hans eigi heppnast. [Sela]

10Þeir skulu eigi hefja höfuðið umhverfis mig, ranglæti vara þeirra skal hylja sjálfa þá.

11Lát rigna á þá eldsglóðum, hrind þeim í gryfjur, svo að þeir fái eigi upp staðið.

12Illmáll maður skal eigi fá staðist í landinu, ofríkismanninn skal ógæfan elta með sífelldum höggum.Ég veit, að Drottinn flytur mál hrjáðra, rekur réttar snauðra. [Psalms 140:14) Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt, hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu.]

13Ég veit, að Drottinn flytur mál hrjáðra, rekur réttar snauðra. [Psalms 140:14) Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt, hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu.]

Sigurð Ægisson, 2015
iv>